Ferðaáætlun 2023
Ferðaáætlun Ferðafélags Austur-Skaftafellssýslu
2023
Þema ársins 2023 verður Hörfandi jöklar. Gengið verður að jöklum í mörgum ferðum ársins, en ekki farið á jökul.
14. janúar | Árnanes – Lækjarnes í Nesjum | 1 skór |
12. febrúar | Fláajökull, vestan megin | 1 skór |
11. mars | Lambatungnajökull, gengið úr Hoffellsdal | 2 skór |
16. apríl | Skeiðarárjökull | 1 skór |
13. maí | Morsárjökull | 2 skór |
8. -11. júní | Gönguvikan:
| 1 – 3 skór |
17. júní | Vinnuferð í Kollumúla, nánar auglýst síðar | 1 skór |
20. júní | Óvissuferð á Jónsmessu, nánar auglýst síðar | 1 skór |
7. – 9. júlí | Sæludagar í Lónsöræfum 7. – 9. júlí, þrír dagar. Fararstjórn: Magnhildur Pétursdóttir – panta þarf í þessa ferð með fyrirvara. 7. júlí, föstud. Brottför: Kl. 07 frá Höfn. Ekið að Illakambi og gengið þaðan niður í Múlaskála. Fólk kemur sér fyrir í skálanum og svo er gengið um Víðibrekkusker. 6-7 klst. Hækkun 800 m. 8. júlí. Gengið inn að Tröllkrókum um Leiðartungur. 7 – 8 klst. Hækkun 750 m. 9. júlí. Gengið frá Múlaskála fram Kamba að göngubrú við Eskifell og þaðan að Hnappadalsá þar sem ferðin endar. Bílar keyra göngufólki niður á Höfn,. 7 klst. Hækkun 800 m. Hámarksfjöldi: 24 manns. Verð: 49.500 (félagar í FÍ)/54.500. Innifalið: Fararstjórn, akstur, gisting, 2x morgunmatur, 3x nesti, 2x kvöldmatur. Nánari upplýsingar og skráning á ferdafelag@gonguferdir.is eða í síma 868-7624 (Magga). | 3 skór |
19. ágúst | Öræfajökull frá Sandfelli | 2 skór |
10. september | Breiðarmerkurjökull | 1 skór |
14. október | Fláajökull, austan megin | 1 skór |
19. nóvember | Ketillaugarfjall eða Bergárdalsheiði | 3 skór |
9. desember | Austurskógar í Stafafellsfjöllum | 2 skór |
Brottför er frá þjónustumiðstöðinni við tjaldsvæðið á Höfn nema annað sé auglýst. Ferðir eru flokkaðar eftir erfiðleikastigum þar sem 1 skór merkir að gangan sé við flestra hæfi, 2 skór er orðin aðeins meira krefjandi og 3 skór merkir að búast má við talsverðri hækkur og/eða lengri vegalengd. Ferðir eru almennt auglýstar á fésbókarsíðu félagsins https://www.facebook.com/groups/339172596208232/permalink/4465583846900399 og geta breyst frá áætlun ef veðurspá gefur tilefni til. Styttri göngur, verð: 1.000 fyrir einn/1.500 fyrir hjón/pör. Frítt dyrir 18 ára og yngri. Heimasíða: www.gonguferdir.is Netfang: ferdafelag@gonguferdir.is Sími: 868 7624 |