Sæludagar í Lónsöræfum

Sæludagar í Lónsöræfum 2. – 5. júlí 2026, fjórir dagar. 

Erfiðleikastig 3 skór.

Fararstjórn: Ragna Pétursdóttir – panta þarf í þessa ferð með fyrirvara. 

2. júlí, fimmtudagur.

Brottför: Kl. 18:00 frá tjaldstæðinu á Höfn. Ekið að Illakambi og gengið þaðan niður í Múlaskála með vistir og farangur. Fólk kemur sér fyrir í skálanum og fær sér kvöldhressingu með sínum hætti (hver með sitt nesti).

3. júlí, föstudagur.

Morgunmatur og smurt nesti fyrir daginn.  

Gengið af stað um kl. 10:00 um Víðibrekkusker. 

Sameiginlegur kvöldverður kl. 18:00

Tími: 5 – 6 klst. 

Hækkun: 700 m.

4. júlí, laugardagur.

Morgunmatur og smurt nesti fyrir daginn.  

Gengið af stað um kl. 10:00 að Tröllakrókum um Leiðartungur. 

Tími: 7 – 8 klst. 

Hækkun: 750 m.

5. júlí, sunnudagur.

Gengið frá Múlaskála fram Kamba að Tæpugötuhjalla þar sem ferðin endar. Bílar keyra göngufólki til Hafnar. 

Tími: 6 klst. 

Hækkun: 800 m. 

Hámarksfjöldi: 24 manns.

Verð: 64.000 (félagar í FÍ.)/71.000 (aðrir).Innifalið: Fararstjórn, akstur, gisting, 3x morgunmatur, 3x nesti, 2x kvöldmatur. Nánari upplýsingar og skráning á ferdafelag@gonguferdir.is  eða í síma 868 7624 (Magnhildur).