Múlaskáli

Múlaskáli var tekin í notkun 1993. Hann stendur í Nesi við sunnanverðan Kollumúla á Lónsöræfum. Frá Illakambi er u.þ.b. 40 mínútna gangur að skálanum.
Skálinn tekur 28 manns í gistingu.12 manns á svefnlofti og 16 manns í kojum á neðri hæð. Við skálann er hreinlætishús með vatnssalernum og sturtum. Starfandi skálavörður eru á svæðinu frá 20. júní til 20 ágúst ásamt landverði.

Í skálanum eru 25 svefnpokar sem hægt er að leigja.
Upplýsingar  um bókanir gefur ferdafelag@gonguferdir.is

GPS hnit:  64°33.200N 15°09.077W.

Gisting í Múlaskála kostar:
7.200 kr fyrir utanfélagsmenn
5.500 kr fyrir félagsmenn í Ferðafélagi Íslands.
6.700 kr fyrir Ferðaskrifstofur

Umsjón bókana. Magnhildur Pétursdóttir sími 8687624
Netfang. ferdafelag@gonguferdir.is

Bankaupplýsingar.
Kt. 490295 – 2169
Banki: 0169 – 15 – 200363