Ferðaáætlun 2027
Ferðaáætlun Ferðafélags Austur-Skaftfellinga 2027
| Dags. | Ferðalýsing | Erfiðleikastig |
| Janúar/febrúar | Skautað í góðu veðri, nánar auglýst síðar | 1 skór |
| 20. febrúar | Öræfin – Milli Fjallsár og Hrútár, 5 km. | 2 skór |
| 20. mars | Páskaeggjaleit í Vík í Lóni | 1 skór |
| 24.apríl | Suðursveit: Staðardalur – Garðshvammur – Klukkugil. Um 5 klst. – jeppaferð | 2 skór |
| 23/30. maí | Ganga og helgistund í Hoffelli í Nesjum. Létt ganga, 4-5 km. | 1 skór |
| Um miðjan júní | Vinnuferð í Kollumúla, nánar auglýst síðar | 1 skór |
| 1. – 4. júlí | Sæludagar í Lónsöræfum 1. – 4. júlí, fjórir dagar. Sjá nánari upplýsingar sumarleyfisferðum hjá FÍ | 3 skór |
| 7. ágúst | Gengið inn að Morsárlóni í Skaftafelli, 19,5 km. Lagt af stað frá Gestastofu í Skaftafelli kl. 9:00. Skrá þarf í þessa ferð hjá Sigrúnu í síma 864-5456 | 3 skór |
| September | Stuttar gönguferðir í tengslum við Hreyfivikuna og Gulan september. Nánar auglýst síðar | 1 skór |
| Október | Stutt ganga í tengslum við geðheilbrigðisviku | 1 skór |
Brottför er frá þjónustumiðstöðinni við tjaldsvæðið á Höfn nema annað sé auglýst. Ferðir eru flokkaðar eftir erfiðleikastigum þar sem 1 skór merkir að gangan sé við flestra hæfi, 2 skór er orðin aðeins meira krefjandi og 3 skór merkir að búast má við talsverðri hækkun og/eða lengri vegalengd. Ferðir eru almennt auglýstar á fésbókarsíðu félagsins og á viðburðardagatali Eystrahorns og sveitarfélagsins. Einnig mun félagið vera með nýjung að bjóða uppá fjórar stuttar lýðheilsugöngur, um 1 klst. Göngurnar verða auglýstar þegar nær dregur. Facebook hópur: https://www.facebook.com/groups/339172596208232 og geta breyst frá áætlun ef veðurspá gefur tilefni til. Almennt kostar 1.000 kr. á mann í göngur, nema annað sé tekið fram. Frítt fyrir 18 ára og yngri. Heimasíða: www.gonguferdir.is Netfang: ferdafelag@gonguferdir.is Sími: 868 7624 | ||
